Kaffi
Langbrók er
í Fljótshlíðinni, um það bil 10 km. frá Hvolsvelli, við
þjóðveg nr. 261
Við
bjóðum upp á kaffi og heimabakað bakkelsi auk þess sem við erum
með fullt vínveitingaleyfi. Oft hefur verið kveðið með kaffinu. Við
bjóðum upp á kvöldmat fyrir hópa sem panta með fyrirvara og oft
skapast skemmtileg pöbbastemming á kvöldin. Það eru hljóðfæri á
staðnum sem fólk getur gripið í, því oft leynast snillingar í góðum
hópum. Sjónvarp er á Kaffi Langbrók svo og nettengd tölva sem fólk
getur leigt sér aðgang að.
Ágætt
tjaldsvæði
er umhverfis húsið með salernisaðstöðu, heitu og köldu vatni, útivöskum
og sturtu. Rafmagn fyrir húsbíla er einnig til staðar. Upplagt er að
tjalda til fleiri en einnar nætur og keyra í allar áttir stuttar
dagsferðir, t.d. fjallabak, Emstrur, undir Eyjafjöll eða hoppa yfir til
Vestmannaeyja. Eða bara að slappa af og njóta náttúrufegurðarinnar
í Fljótshlíðinni.
Í
nágrenninu
er góð bændagisting, hestaleiga, lax-og silungsveiði, gönguleiðir og
nýr níu holu golfvöllur er í göngufæri. Alla þjónustu er hægt að
fá á Hvolsvelli (10 km.) s.s. verslun, banka, snyrtistofu, pizzastað, söfn,
verkstæði, sundlaug og bókasafn svo eitthvað sé nefnt.
|